Viðburður
Ævintýrasvæði og best geymdu leyndarmálin | Foreldramorgunn07.05.202610:00
Hulda Margrét Birkisdóttir frá Náttúrusafni Kópavogs mun halda utan um síðasta foreldramorgun annarinnar. Hún mun ræða við foreldra um hvað er hægt að gera í nærumhverfinu hér í Kópavogi sem er frítt og einfalt fyrir fjölskyldur.

Hvernig sköpum við gæðastundir með litlum krílum án þess að borga krónu! Hvað er í boði hér í næsta nágrenni sem er þroskandi og skemmtilegt fyrir könnuði framtíðarinnar? Hvar eru ævintýrasvæðin og best geymdu leyndarmálin í Kópavogi? Öll velkomin.
Foreldramorgnar eru frábært tækifæri fyrir foreldra og ung börn þeirra til að hittast og eiga rólega stund saman á safninu.
Fylgist með í Facebook-hópnum Foreldramorgnar | Bókasafn Kópavogs.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.